Stjórn Rafmyntaráðs skipa sjö einstaklingar hverju sinni. Þar af eru fimm sæti í aðalstjórn og tvö í varastjórn. Stjórnin skiptir með sér verkum og tilnefnir formann stjórnar og gjaldkera. Einstaklingar í stjórn Rafmyntaráðs eru kjörnir á árlegum aðalfundi samtakanna og stjórnarsetan er ógreidd.
Engar formlegar kröfur eru gerðar til hæfi einstaklinga í stjórn eða þekkingu á málefnum rafmynta, enda skiptir fjölbreytni og breidd innan samtakanna miklu máli. Stjórnin vill stuðla að meiri þátttöku kvenna innan stéttarinnar og eru þær því sérstaklega hvattar til að bjóða sig fram á næsta aðalfundi samtakanna.
Stjórnin fundar annan hvern mánuð í 90 mínútur og eru önnur störf utan þess tíma ekki skylda. Samtökin hafa framkvæmdastjóra í fullu starfi sem heldur utan um daglegan rekstur og önnur málefni. Stjórnin starfar sjálfstætt í umboði félaga og sér til þess að markmiði samtakanna sé fylgt. Stjórnin ræður í stöðu framkvæmdastjóra samtakanna.
Stjórnin var kjörin á aðalfundi samtakanna þann 29. september 2020, sem haldinn var í höfuðstöðvum samtakanna að Katrínartúni 4 og á netinu. Enn á eftir að úthluta í stöður í nýju stjórninni.
Röðun eftir niðurstöðu kosninga.
Erna Sigurðardóttir
Erna er lögfræðingur og starfar hjá fjártæknifyrirtækinu Rapyd Europe. Hún hefur starfað hjá Skatta- og lögfræðiráðgjöf Deloitte og hjá LOGOS lögmannsþjónustu. Erna hefur sérstakan áhuga á samspili tækni og lögfræði og hefur m.a. rannsakað bálkakeðjutæknina og notkun hennar í ýmsum tilgangi með áherslu á lögfræðileg álitaefni og jafnframt flutt fyrirlestra um efnið. Erna er stofnandi áhugahóps um tæknirétt innan Lögfræðingafélags Íslands og kemur einnig til með að kenna áfanga við HR um fjártækni og lög.
Erna hefur fjölbreytta reynslu af félagsstörfum og hefur m.a. setið í stjórn VERTOnet, hagsmunasamtaka kvenna í upplýsingatækni á Íslandi, í Gæðaráði íslenskra háskóla, í stjórn Stúdentafélags HR og tekið virkan þátt í uppbyggingu öflugs háskólasamfélags á Íslandi í öðrum trúnaðarstöðum. Hún situr nú í starfshóp menntamálaráðherra um gæði og skilvirkni í háskólum.
Daníel Fannar Jónsson
Daníel F. Jónsson hefur starfað í upplýsingatækni frá árinu 2002, lengi vel erlendis fyrir félög eins og HP og Dell en á síðustu árum hér á Íslandi. Þar hefur hann unnið fyrir Annata, Advania og að lokum hjá Advania Data Centers þar sem ég var ráðinn inn sem Director of Blockchain Technologies vegna áhuga og þekkingar á blockchain og mining geiranum. Frá byrjun 2019 hefur hann hinsvegar starfað sjálfstætt og rekur í dag félag sem námuvinnur Bitcoin hér á Íslandi ásamt því að veita ráðgjöf um mining og rafmyntir. Daníel hefur setið í stjórn IBF síðastliðið ár.
Hanna Kristín Skaftadóttir
Hanna Kristín Skaftadóttir er framkvæmdastjóri Poppins & Partners og hefur starfað á breiðu sviði nýsköpunar, fjármála og endurskoðunar síðastliðin 15 ár. Hún vinnur sem stendur að doktorsverkefni við að rannsaka innleiðingu á Robotic Process Automations e. RPA í endurskoðun á Íslandi. Hanna sinnir einnig kennslu í meistaranámi við viðskiptadeild Háskóla Íslands á sviði fjármála og endurskoðunar/reikningsskila. Hún er hluti af teymi CAR Lab (e. continuous accounting research lab) við Rutgers University og hefur verið að fylgjast þar náið með rannsóknum á möguleikum á notkun bálkakeðja.
Hlynur Þór Björnsson
Hlynur Þór Björnsson hefur starfað á fjármálamarkaði við áhættu- og eignastýringu undanfarin 15 ár, meðal annars sem Deildarstjóri Fjárhagsáhættu hjá Valitor hf, Forstöðumaður Áhættueftirlits Gildis lífeyrissjóðs og fyrir það sem sérfræðingur í áhættustýringu hjá Arion banka og fjárstýringu Landsbankans. Hlynur er einn af stofnendum Rafmyntaráðs og hefur verið formaður stjórnar frá árinu 2018.
Diljá Helgadóttir
Diljá Helgadóttir er með nokkurra ára reynslu í bankageiranum en starfar nú sem lögfræðingur á alþjóðlegu lögmannsstofunni Van Bael & Bellis í Brussel. Van Bael & Bellis hefur verið leiðandi lögmannsstofa á sviði Evrópuréttar, þar með talið samkeppnis- og viðskiptaréttar sl. 35 ár. Diljá lauk LL.M. gráðu í alþjóðlegum viðskiptarétti og tæknirétti frá lagadeild Duke háskóla í vor. Sem lögfræðingur hefur Diljá tileinkað sér kunnáttu á ýmsum álitaefnum sem kunna að koma upp í tengslum við vaxandi landslag á sviði fjártækni.
Áður útskrifaðist hún með BA og ML gráður í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Þar útskrifaðist hún með hæstu meðaleinkunn á meistaraprófi og fékk verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur. Diljá hefur birt sex fræðigreinar á ritrýndum vettvangi bæði hér á landi sem og erlendis, tvær á sviði fjártækni.
Valur Þór Gunnarsson (í varastjórn)
Valur er framkvæmdastjóri Taktikal er sérhæfir sig í rafrænum traustþjónustum. Hann lauk námi í rafrænum viðskiptum fyrir 20 árum síðan hefur um árabil starfað við stafræna vöruþróun í fjármálageiranum ásamt því að hafa setið í varastjórn Rafmyntaráðs s.l. ár.
Kjartan Ragnars (í varastjórn)
Kjartan Ragnars er stofnandi Cicero lögmannsstofu þar sem hann starfar sem lögmaður. Hann situr í stjórn Myntkaupa og sinni lögfræðilegum störfum fyrir félagið. Kjartan þekki því orðið nokkuð vel þær lagareglur sem gilda um starfsemi fyrirtækja sem sýsla með rafmyntir og eins hvaða lagareglur einstaklingar þurfa að hafa í huga.
Í áttundu grein samþykkta Rafmyntaráðs stendur eftirfarandi.
Stjórn félagsins skal skipuð 5 félagsmönnum, þar af formanni og gjaldkera, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn, auk tveggja varamanna. Þeir fimm félagsmenn með flest atkvæði á aðalfundi skulu skipa stjórn félagsins og næstu tveir vera varamenn. Ef komi upp sú staða að tveir eða fleiri frambjóðendur hljóti sama atkvæðafjölda skal hlutkesti ráða. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður stjórnar boðar til stjórnarfundar á amk. tveggja mánaða frestien meirihluti stjórnar getur einnig farið fram á að stjórnarfundur sé haldinn utan þess tímaramma. Stjórnarfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað með að lágmarki viku fyrirvara og telst tölvupóstur á skráð tölvupóstfang allra stjórnarmanna sem löglega boðaður stjórnarfundur. Stjórnarfundir skulu vera haldnir að lögheimili félagsins eða öðrum stað sem meirihluti stjórnar hefur sammælst um á Íslandi. Heimilt er að sækja stjórnarfundi og greiða atkvæði gegnum fjarfundarbúnað. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
Fyrsta stjórn Rafmyntaráðs var kjörin á aðalfundi félagsins þann 3. maí 2018.
Stjórnin var kjörin á aðalfundi samtakanna þann 2. maí 2019, sem haldinn var á Tunglinu (fyrir ofan Hard Rock). Fundurinn var vel sóttur.